Til að hafa samband við okkur varðandi auglýsingar getur þú sent okkur póst á "auglysingar (att merki) heilsusidan.is"
Heilsusíðan rekur ábyrga auglýsingastefnu sem miðast við að verða almenningi og meðferðaraðilum sem stunda náttúrulegar lækningar til góða. Heilsusíðan er vefsíða sem reiðir sig ekki á auglýsingar fyrir tekjur. Með þessu móti vill hún halda fjárhagslegu sjálfstæði sínu til að verða ekki upp á fyrirtæki komin. Þannig getur Heilsusíðan óhikað gagnrýnt fyrirtæki og þjónustu fyrir óábyrga hegðun.
Verð auglýsinga miðast við hversu mikinn hag almenningur hefur af henni. Auglýsingar falla í eftirfarandi 5 flokka:
Heilsusíðan ákvarðar í hvaða flokk vara eða þjónusta fellur í.
Auglýsingar sem nota blekkjandi orðafar eða hvetja um of til tilfinninga verða ekki leyfðar. Auglýsingar skulu vera skýrar og gefa sannar upplýsingar um kosti vöru eða þjónustu sem auglýst er.
Heilsusíðan áskilur sér rétt að velja og hafna auglýsingum.
Heilsusíðan tekur að sér að hanna og útsetja auglýsingar fyrir vefi.
Einnig getum við sett upp auglýsingu fyrir þig og hannað og sett upp undirsiðu á Heilsusíðunni sem auglýsingin tengist á. Frábært fyrir þá sem eru ekki með sína eigin síðu en vilja koma einhverju á framfæri.
Verið er að vinna í uppsetningu á verðlista